© 2024 Tix Miðasala
Sjáland
•
12. desember
Þann 12. desember mun hljómsveitin Dikta halda sína árlegu jólatónleika á Sjálandi í Garðabæ.
Það þarf vart að kynna Diktu fyrir Íslendingum enda fyrir margt löngu búnir að
syngja sig og spila inn í hjörtu þjóðarinnar með hverjum smellinum á fætur öðrum sem fengið hafa að hljóma á öldum ljósvakans. Síðustu ár hefur hljómsveitin jafnan haldið tónleika á þessum árstíma og
spilað jólalög í bland við sín eigin lög í sparibúningi. Það verður engin breyting á því í ár og verður hugljúfur jólaandinn í algeru fyrirrúmi. Engin hætta er á öðru en að hver sá sem mætir á þennan viðburð fari þaðan með bros á vör. Ekki láta þig vanta á Sjáland þann 12. desember.
Húsið opnar kl 19:00 og tónleikar hefjast kl 20:00.
Hægt er að kaupa gómsætan smáréttaplatta. Á honum má finna:
Rækjukokteill á smjördeigi með sítrónu og papriku
Kalkúnataco, piparrótardressing, perur og pikklað rauðkál
Graflaxsamloka með kotasælusalati og graflaxssósu
Hreindýraborgari með grænum eplum og gráðakostadressingu
Hnetusteik með döðlu hindberjachutney og apríkósudressingu (v)
Hlökkum til að sjá ykkur í einum glæsilegasta veislusal landsins.