Herrakvöld Víkings 2024

Víkingsvöllur

1. nóvember

Sala hefst

16. október 2024, 12:00

(eftir 15 klukkustundir)

Hið árlega herrakvöld Víkings verður haldið föstudaginn 1. nóvember í veislusal Víkings í Safamýri. Víkingar ættu ekki að láta sig vanta á þennan glæsilega viðburð og nýta tækifærið til að skála og fagna í góðum hópi.

Miðafjöldi er takmarkaður og því er mikilvægt að tryggja sér miða í tæka tíð. Hægt er að kaupa staka miða á kvöldið en einnig er hægt að bóka heil borð (10 sæti) með því að senda póst á kvennaknattspyrna@vikingur.is þar sem kvittun fyrir miðum fylgir með.

Húsið opnar kl. 18.30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 19.30. Sveppi og Auddi sjá um veislustjórn ásamt leynigesti.

Enginn verður svangur því boðið verður upp á glæsilegt steikarhlaðborð að hætti Múlakaffis. Ef þú hefur séróskir varðandi matinn biðjum við þig um að hafa samband á kvennaknattspyrna@vikingur.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger