© 2024 Tix Miðasala
IÐNÓ
•
17. nóvember
Í verkinu Samara Editions hannar Kate öskju sem inniheldur safn hluta sem örva skynfærin og er ætlað að opna og umbreyta upplifun okkar af hversdagslegum atburðum.
Verkið samanstendur af þremur hlutum: ilmupplifun sem gæti komið þér til að efast um það hvaða dýrategund þú tilheyrir, í samstarfi við ilmlistamanninn Nathan Taare, athöfn sem breytir hjartanu í þér í diskókúlu, og spilastokki fyrir skynfærin sem mun skapa óvænt tengsl milli ókunnugra handa, með myndskreytingum eftir Mariu Guiliu Chistolini, öðru nafni Accappatoio.
Settið er mjög einfalt og handhægt. Hægt er að taka þátt á eigin spýtur eða deila upplifuninni. Okkur er boðið að láta eigin líkama (og annarra) koma okkur á óvart – að hlusta, rannsaka og leika okkur að skilningarvitunum.
„Samara Editions – sviðslistaverk í pósti“ bjóða listafólki að skapa ný verk sem hægt er að senda út með pósti. Þegar þú kaupir miða á Samara færðu öskju sem inniheldur allt sem þarf til að upplifa frumsýningu á þínum eigin forsendum, í eigin rými. Þú ert í senn listamaður og áhorfandi. Taktu þér góðan tíma, skoðaðu innihald öskjunnar. Ekkert liggur á og það er engin ein rétt leið.
Eftir að hafa unnið með Chiöru Bersani, Tamöru Cubas og Jennu Sutala að verkum sem sýnd voru meðal annars á Spielart í Munchen, í Black Box Theatre í Osló, Kampnagel í Hamborg og Spring Festival í Utrecht hafa Samara nú pantað nýtt verk eftir Kate McIntosh. Kate McIntosh skapar verk á fjölbreyttu formi, meðal annars gjörninga, leiksýningar, vídeóverk og innsetningar. Í verkum Kate birtast gjarnan bæði húmor og tenging við vísindi og tilraunir. Hún stjórnast af viðvarandi hrifningu sinni á því að nota hluti á rangan hátt og að skapa gáskafull tengsl milli áhorfenda.