© 2024 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
26. október
Glænýtt dansverk frumsýnt á List án landamæra í Tjarnarbíói
Svartir fuglar er nýtt dansverk eftir Láru Stefánsdóttur spunnið út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur, úr bókinni sem nefnist “Sjáðu, sjáðu mig, það er eina leiðin til að elska mig”, og er samið sérstaklega fyrir Láru Þorsteinsdóttur.
Öll ættu að geta tengt við ljóðin því flest leitast við á lífsleiðinni að tengjast sinni innri fegurð, sínum kjarna, sannleika en þurfa oftar en ekki að takast á við allskonar skuggahliðar og tilfinningaárásum í leitinni að ljósinu, gleðinni, ástinni, kærleikanum.
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir
Ljóðskáld og upplestur: Elísabet Jökulsdóttir
Dansarar:
Lára Þorsteinsdóttir
Íris Ásmundardóttir
Sigurður Edgar Andersen
Ljósa/tæknimaður: Arnar Ingvarsson
Samsetning tónlistar og höfundur: Stefán Franz Guðnason
Ljósmyndari og kynningarmyndband: Þorsteinn J. Vilhjálmsson