Dúó fyrir selló og gítar.

Hannesarholt

31. október

Miðaverð frá

4.900 kr.

Tónlist fyrir gítar og selló flutt af Svani Vilbergssyni og Þórdísi Gerði Jónsdóttur.

Samstarf Svans Vilbergssonar, gítarleikara, og Þórdísar Gerðar Jónsdóttur, sellóleikara, hófst vegna sameiginlegs dálætis þeirra á tónverkinu Tristia fyrir selló og gítar, eftir tónskáldið og sellóleikarann Hafliða Hallgrímsson. Verkið samdi Hafliði fyrir gítarleikarann Pétur Jónasson og sjálfan sig, í tilefni Listahátíðar 1984. Tristia er svíta í sjö stuttum þáttum og er innblásið af minningum úr barnæsku Hafliða á Íslandi, en hann hefur um árabil verið búsettur í Bretlandi. Í verkinu eru hljóðfærin algjörir jafningjar og notar tónskáldið ýmsa ólíka en áferðarfagra hljóðfæratækni til að búa til fjölbreyttan og draumkenndan hljóðheim. Útkoman er einstök blöndun tveggja hljóðfæra, þar sem laglínur og landslag renna saman í eitt. Verk Hafliða varð svo innblástur fyrir hljóðfæraleikarana að halda áfram samspili og munu einnig verða flutt verk eftir braselíska tónskáldið Radames Gnattali auk hinna sívinsælu spænsku sönglaga í útsetningu Manuel de Falla.

Tónleikarnir verða haldnir í Hljóðbergi, sal Hannesarholts. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger