Óperudagar: CIRCLE Sci-Fi kammerópera Finns Karlssonar

Harpa

27. október

Miðaverð frá

3.900 kr.

Geimskip nokkurt stefnir hraðbyri út í geim. Innanborðs er ofurhetja sem flýgur í gegnum alheiminn að plánetu þar sem vélmenni og geimverur búa. Samfélag sem leitt er af sjarmerandi leiðtoga fylgir eftir og ferðast um heiminn í leit að nýrri plánetu og nýju lífi. Meðan á sýningunni stendur, hreyfast tónlistarmennirnir í takt við klassískar sci-fi kvikmyndir og theramínhljóm.

Þessi stutta kammerópera er barnvæn og tekur um 25 mínútur í flutningi. Hún er eftir Finn Karlsson.

Eftir flutninginn verður stutt listamannaspjall við Finn Karlsson þar sem við röbbum saman um líf hans og list.

Verkefnið er styrkt af Statens Kunstfond, Art Music Denmark. Sýningin á Íslandi er auk þess styrkt af Sviðslistarsjóði.

Þátttakendur
Finnur Karlsson, tónskáld
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, mezzósópran
NJYD, kvartett

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger