© 2025 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
5. - 13. september
Miðaverð frá
7.900 kr.
Uppistandið Hagsmunir með Bergi Ebba sló algjörlega í gegn á síðasta leikári Tjarnarbíós með yfir 25 uppseldar sýningar og fimm þúsund selda miða. Fór lokasýning uppistandsins fram í maí en vegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að framlengja sýningaröðina, en með aðeins örfáum sýningum sem fara munu fram nú í haust.
Hagsmunir fjallar um samtímann og samskiptamynstur hans, hvernig við tölum saman, hvernig við hugsum um framtíðina og ekki síst um alla hlýlegu hversdagslegu hlutina sem skipta í raun mestu máli þegar upp er staðið.
Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með tæpa tveggja áratuga reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni.
Um uppistandið Kynslóðir
„Sturlað fyndinn en líka alvöru hugsuður á fáránlega áreynslulausan hátt. Drepfyndnar pælingar, bráðþarfar í nútímamenningunni." - Auður Jónsdóttir, rithöfundur. FB
Sýningin er 1 klst og 45 mínútur með hléi.