Ífigenía í Ásbrú

Tjarnarbíó

3 sýningar

Miðaverð frá

4.900 kr.

**,,**Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, pökkuð eins og alltaf. Allir hóstandi og hnerrandi og ég finn svona hvernig ég er að verða veik að því að anda inn ógeðinu sem hinir anda út. Feita búkollu-mamman með massíva barnavagninn spyr móttökuna hversu lengi þurfa þau nú eiginlega að bíða. Konan í móttökunni segir að það er aftur bara einn læknir á vakt svo hún gerir ráð fyrir svona 2-3 klukkutímum að minnsta kosti"

Ífígenía í Ásbrú (Iphigenia in Splott) eftir Gary Owen er verðlaunaverk sem hefur farið í sigurför umheiminn. Leikritið fjallar um Ífí, stelpuna sem þú tekur sveig framhjá þegar þú mætir henni hauslausri fyrir hádegi. En það sem þú veist ekki er að þú stendur í ævilangri þakkarskuld við hana. Og nú er komið að skuldadögum.

Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg.

Leikstjóri: Anna María Tómasdóttir

Leikkona: Þórey Birgisdóttir

Höfundur: Gary Owen

Hljóðhönnun: Kristín Hrönn Jónsdóttir

Ljósahönnun: Ásta Jónína Arnardóttir

Aðstoðarleikstjóri: Gígja Hilmarsdóttir

Plaggat grafík: Ragnar Fjalar Lárusson

Ljósmyndari: Grace Jane Claiborn-Barbörudóttir 

Þýðing: Þórey Birgisdóttir og Anna María Tómasdóttir

 

Viðvörun:

Verkið inniheldur senur um viðkvæm málefni og er bannað börnum. Til þess að spilla ekki fyrir upplifun þinni af verkinu hvetjum við þig til að fá nánari upplýsingar um sýninguna fyrirfram teljir þú að eitthvað gæti vakið upp óþægileg viðbrögð sem þú vilt forðast. Hafðu samband við tjarnarbio@tjarnarbio.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger