© 2024 Tix Miðasala
Hannesarholt
•
7. febrúar
Miðaverð frá
5.900 kr.
Frönsk impressjónísk kammerveisla! Flutt verða þrjú af eftirlætis tónverkum Caudu Collective eftir Maurice Ravel (1875-1937): Strengjakvartett í F-dúr, Söngvar frá Madagaskar og Pavane fyrir látna prinsessu. Þá verður flutt Næturljóð eftir Lili Boulanger (1893-1918) sem varð árið 1913 fyrst kvenna til að hreppa hin virtu tónsmíðaverðlaun Prix de Rome.
Tónleikarnir verða í Hljóðbergi - gengið inn frá Skálholtsstíg.