Hverfa / Órætt algleymi

Borgarleikhúsið

1. - 24. nóvember

Miðaverð frá

6.900 kr.

Íslenski dansflokkurinn kynnir tvö ný íslensk dansverk, frumsýnd sama kvöldið á stóra sviði Borgarleikhússins. 

Hverfa

Verk eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur 

Hverfa er óður til negatívunnar og þess sem blasir ekki við, líkt og ranghverfa á flík, herðatré á tómum fatarekka, hátalarasnúra í flækju eða annað sem við tökum að öllu jöfnu ekki eftir. Verkinu má líkja við upphafningu á aukaatriðum þar sem hið ósýnilega verður sýnilegt. Í Hverfu mætast tveir dansarar í nokkurs konar sálumessu til leikhússins og þess sem á það til að hverfa í bakgrunninn.

Ho¨fundur: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir; Dansarar: Ásgeir Helgi Magnússon, Andrean Sigurgeirsson; Leikmynd og Bu´ningar: Elín Hansdóttir; Tónlist: og hljóðmynd: Árni Rúnar Hlöðversson; Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson; Dramatúrg: Igor Dobricic; Framleiðsla: Milkywhale

Órætt algleymi/ Liminal States

Verk eftir Verk eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur 

Að vera áhorfandi að verkum Margrétar Söru er einsog að horfa inn í fljótandi spegil. Hér líður tíminn á annan hátt en við erum vön. Nærvera dansaranna á sviðinu, sviðsmynd og tónlist bjóða okkur að halla okkur inn í spennandi flæmi þar sem innri og ytri veruleiki fljóta saman og okkur er boðið inn í kraftmikla og dáleiðandi upplifun. 

Ho¨fundur: Margrét Sara Guðjónsdóttir; Dansarar: Elín Signý Ragnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Una Björg Bjarnadóttir; Tónlist: Peter Rehberg; Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson; Sviðsmynd: Margrét Sara Guðjónsdóttir; Búningar: Karen Briem

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger