Rakarinn í Sevilla

Parliament Hotel

6 sýningar

Miðaverð frá

8.900 kr.

Fyrir langalöngu síðan, í landi langt, langt í burtu… Spáni.


Óperan Rakarinn í Sevilla er eftir ítalska tónskáldið Rossini, byggir á sögu franska leikskáldsins Beaumarchais og fjallar um Spánverja. Í meðförum Óðs verður hún flutt á íslensku, í glænýrri þýðingu hópsins, svo skaft þessa landfræðilega og menningarlega suðupotts lengist enn frekar. Þessi fyrsti hluti sögunnar um Figaro, Almaviva, Rosinu og Bartolo er ein ástsælasta gamanópera sögunnar en reyndustu fræðingar um verkið mega þó búast við ýmsu óvæntu í þessu nýjasta útspili Óðs, þar sem rakarakvartett, rússneskir rógberar og önnur stef á villigötum koma við sögu.

Óður er Listhópur Reykjavíkur 2024, hefur unnið til Grímuverðlauna fyrir starf sitt og verið tilnefndur sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Frumraun hópsins leit dagsins ljós í október 2021 í Þjóðleikhúskjallaranum og hefur hópurinn síðan sýnt yfir 40 sýningar af þremur uppfærslum sínum þar; Ástardrykknum, Don Pasquale og Póst-Jóni.

Rakarinn í Sevilla er fyrsta sýning hópsins í Sjálfstæðissalnum. Verkefnið er styrkt af Sviðslistasjóði.

Leikstjórn:
Tómas Helgi Baldursson
Tónlist eftir:
Gioachino Rossini
Þýðing og handrit:
Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason
Tónlistarstjórn:
Sævar Helgi Jóhannsson

Lýsing:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Hönnun plakats:
Atli Sigursveinsson


Figaro:
Áslákur Ingvarsson
Almaviva:
Þórhallur Auður Helgason
Rosina:
Sólveig Sigurðardóttir
Bartolo:
Ragnar Pétur Jóhannsson

Vasilievsky:
Philip Barkhudarov

Rakarakvartettinn:
Karl Hjaltason
Gunnar Thor Örnólfsson
Þorkell Helgi Sigfússon
Philip Barkhudarov

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger