Söngvaskáld | Emmsjé Gauti

Salurinn

15. febrúar

Miðaverð frá

6.900 kr.

Tónleikaröðin Söngvaskáld beinir kastljósinu að tónlistarfólki sem semur og flytur eigin tónlist. 

Fram koma JóiPé x Króli, JFDR, gugusar, Emmsjé Gauti og Bríet.

Emmsjé Gauti er sviðsnafn rapparans Gauta Þeys Mássonar. Hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 2011. Átta plötum seinna er Gauti orðið nafn sem flestir ættu að kannast við. Hvort sem þú fílar rapplögin, ballöðurnar eða bæði, þá finnur þú eitthvað fyrir alla á tónleikum með Gauta.
Gauti er þekktur fyrir metnaðarfulla sviðsframkomu og leggur sig allan fram við að gera sem mest úr upplifun áhorfenda. Þú þarft ekki að fíla tónlist til að hafa gaman af þessum tónleikum, bara að hafa gaman af því að skemmta þér.

Söngvaskáld er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila frumsamin lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar aðferðir tónlistarfólks við lagasmíðar og gefur þjóðþekktum lögum meiri dýpt.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger