Sígildir sunnudagar: gímaldin

Harpa

12. janúar

Miðaverð frá

4.500 kr.

gímaldin mun leika verk úr Kinly Related Metal Reggaes seríunni. Gítar og hljómborð yfir midistýrðar strengjavélar.

Tónleikarnir eru um 50 mínútur.

Kinly Related er einsog titillinn gefur til kynna seríal tónverk sem sameinar nokkur helstu hugðarefni höfundarins: Þungarokk, reggae, elektró, Prokofiev og gítar. Verkin eru sex talsins:

  • En liten tribjut til Saga Norén - New Ringtone-extravaganza

  • Martin Rohde theme - Ringtone Reggae extravaganza

  • Bach For Beata

  • Sonat fyrir Sissa

  • Jessica Jones' Own Ringtone Reggae Theme Song

  • Big Country Ball með Bree í Byggð

Verkin hafa ekki komið út í endanlegri útgáfu, en eins og titlarnir gefa til kynna eru hlutar þeirra til sem hringitónar fyrir í síma. Fyrstu fjögur verkin hafa verið flutt áður í elektró-metal umgjörð, Jessica hefur verið flutt á samsýningu og Big Country einu sinni með Lúðrasveit Hornafjarðar. Strengjavélaútsetningarnar verða frumfluttar í Hörpu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger