© 2024 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
2 sýningar
Miðaverð frá
7.800 kr.
Árið án sumars
Rómantísk hrollvekja um vináttu og veður
Frumsýnt 27. janúar
Salur: Stóra svið
Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með óhugnanlegum sögum en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur.
Hinn umtalaði leikhópur Marmarabörn snýr aftur á svið með síðasta hluta hamfara-þríleiks síns. Fyrri sýningar hópsins, Að flytja fjöll í þremur atrennum og Eyður, hlutu mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda og hafa verið sýndar víða um heim. Marmarabörn stefna saman tilraunamennsku og hefðum leikhúsformsins til þess að setja á svið tímalausar sögur á áhrifaríkan og leikandi hátt.
Árið án sumars er ögrandi sjónarspil innblásið af raunverulegum atburðum sem áttu sér stað árið 1816 sem var betur þekkt sem árið án sumars. Höfuðskáld Rómantíkurinnar ætluðu sér að sleikja sólina við Genfarvatn en þurftu oft að verja tíma innandyra vegna veðurs, því eldgos hinum megin á hnettinum hafði valdið óvenjulegu gjörningaveðri. Ýmis bókmenntaverk urðu til í þessari afdrifaríku sumardvöl, þar má nefna Frankenstein eftir Mary Shelley, Vampíruna (e. The Vampyre) eftir John Polidori og sum þekktustu ljóð Byrons lávarðar.
Eins og þegar Viktor Frankenstein horfðist í augu við skelfilegt sköpunarverk sitt eða líkt blóðþyrstri vampíru sem svífur á fórnarlamb, stöndum við nú líka andspænis ógurlegri afturgöngu: afleiðingum gjörða okkar í formi loftslagsbreytinga.
Höfundur og leikstjórn: Leikhópurinn Marmarabörn
Leikmynd og búningar: Guðný Hrund
Sigurðardóttir
Tónlist: Gunnar Karel Másson
Dramatúrg: Igor Dobricic
Aðstoðarleikstjórn: Birnir Jón Sigurðsson
Framkvæmastjórn: MurMur/Kara Hergils
Þátttakendur:
Katrín Gunnarsdóttir
Kristinn Guðmundsson
Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Sigurður Arent Jónsson
Védís Kjartansdóttir
Í samstarfi við leikhópinn Marmarabörn.
Stutt af: Rosendal Teater, Reykjavík
Dance Festival, MASQ, Listaháskóli
Íslands.
Styrkt af:
Sviðslistasjóði,
Listamannalaunum,
Norræna Menningarsjóðnum,
Norrænu Ráðherranefndinni,
Reykjavíkurborg.