Sigga Beinteins | Af fingrum fram í 15 ár

Salurinn

21. nóvember

Miðaverð frá

6.500 kr.

Sigga Beinteins er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar og hefur verið að í áratugi. Hljómsveit þeirra Grétars Örvarssonar, Stjórnin, fór aftur á stjá fyrir nokkrum árum og vinsældir sveitarinnar eru síst minni en þegar þau voru á sínum hátindi í kringum Eurovision hér um árið. Á tímabili starfaði Sigga við dúklagningar en góðu heilli hefur hún ekki þurft að veggfóðra eða dúkleggja um árabil því það hefur sko verið yfirdrifið nóg að gera í tónlistinni með tilheyrandi tónleikahaldi og plötuútgáfu. Eitt lag enn, Við eigum samleið, Ég lifi í voninni og fleiri góðir smellir verða á dagskránni ef að líkum lætur.   Með þeim Jóni verður Róbert Þórhallsson á bassa.

Áskriftarmiðar á 15% afslætti eru í boði á salurinn.is fyrir þau sem vilja kaupa miða á 4 eða fleiri viðburði í tónleikaröðinni Af fingrum fram í 15 ár.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger