The Color Run 2025

Laugardalurinn í Reykjavík

16. ágúst

Miðaverð frá

1.900 kr.

SUPER EARLY BIRD MIÐAR KOMNIR Í SÖLUTRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Á ALLRA LÆGSTA VERÐINU

Color Run á Íslandi heldur upp á 10 ára afmæli árið 2025 með sannkallaðri afmælisveislu laugardaginn 16. ágúst 2025. Síðan árið 2015 hafa nálægt 70.000 manns tekið þátt í litahlaupinu á Íslandi i sannkallaðri fjölskyldu- og litaveislu.

EINTÓM HAMINGJA

Sem litahlaupari í The Color Run verður þú, ásamt þúsundum annarra þátttakenda, lituð frá toppi til táar við hvern kílómetra sem þú klárar. Í hverju litahliði verður tekið á móti þér með tónlist, skemmtun og nýjum lit. Þetta snýst ekki um að hlaupa 5 kílómetra á sem skemmstum tíma heldur að hlaupa á þeim hraða og tíma sem þér finnst hæfilegt og gaman. The Color Run er nefnilega ekki kapphlaup heldur hlaup þar sem þúsundir þátttakenda skemmta sér konunglega á meðan þeir verða hjúpaðir lit frá toppi til táar. Í lok hvers kílómetra er hlaupið í gegnum litastöð með tónlist, skemmtun og nýjum lit og við endamarkið keyrir allt um koll með risavaxinni endamarkshátíð þar sem litadýrðin verður að ógleymanlegri upplifun. Þetta verða hamingjusömustu og skemmtilegustu 5 kílómetrar sumarsins!

VERÐIÐ HÆKKAR REGLULEGA

Tryggðu þér miða í tíma á lægra verði því verðið hækkar reglulega eftir því sem nær dregur viðburði. Í boði eru almennir miðar, barnamiðar, fjölskyldupakkar og hópapakkar. Öllum miðum fylgir aðgangur í hlaupið, Color Run hlaupabolur og litapoki.

TVÆR GRUNN MIÐATÝPUR

Almennir miðar eru fyrir einstaklinga 9 ára og eldri- Barnamiðar eru fyrir börn 8 ára og yngri þar sem miðað er við fæðingarárið 2017

PAKKARNIR

Pakki 1: Hópapakki inniheldur fjóra almenna miða- Pakki 2: 2+2 fjölskyldupakki inniheldur tvo almenna miða og tvo barnamiða (8 ára og yngri)- Pakki 3: 3+1 fjölskyldupakki inniheldur þrjá almenna miða og einn barnamiða (8 ára og yngri)

Allir pakkarnir gefa sem samsvarar um 15% afslátt af listaverði á hverjum tíma. Athugið að í kaupferlinu sjást fyrst meðalverð hvers miða í pökkunum. Aðeins er hægt að kaupa pakkana í fjögurra miða skömmtum og pakkaverðið kemur inn í næsta skrefi.

BOLURINN VEITIR AÐGANG AÐ SVÆÐINU

Color Run bolurinn er aðgöngumiðinn á viðburðinn og nauðsynlegt er að vera í bolnum þegar komið er í hlaupið. Hlaupagögn eru sótt í Color Run búðina í vikunni fyrir viðburð þar sem miðahafar velja sér bolastærð. Tilkynnt eru um staðsetningu og opnunartíma búðarinnar 10 dögum fyrir viðburð.

OKKAR MARKMIÐ

Okkar markmið er að The Color Run færi fólk saman og geri heiminn hamingjusamari. Við köllum The Color Run hamingjusamasta hlaup í heimi vegna þess að hlaupið færir saman vini og vandamenn í einstaka skemmtun og hátíð. Við setjum hamingjuna í forgrunn. Lífið snýst um ánægju og að líða vel. Þess vegna skal The Color Run vera hamingjusamasta hlaupið á jörðinni.

ALLR VELKOMINR - ALLIR!

The Color Run er fyrir alla, konur með hár og kalla með skalla, allt frá 2ja ára til 80 ára (jafnvel 102 ára). Sumir hlaupa til að koma í gang betri lífsstíl á skemmtilegan hátt á meðan aðrir hlaupa bara til að skemmta sér með vinum sínum. Þátttakendur geta hlaupið einir sér eða í smærri hópum og sumir hlaupa með ákveðinn tilgang. Hvort sem þú ert gamall brokkari eða afreksíþróttamaður þá mun The Color Run verða eftirminnilegustu og litríkustu 5 kílómetrarnir í þínu lífi!

Heimasíða: https://colorrun.is/

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger