Blómin á þakinu

Þjóðleikhúsið

7 sýningar

Miðaverð frá

0 kr.

Yndisleg sýning um lífið í borg og sveit

50 uppseldar sýningar á síðasta leikári

Barnasýning ársins – Grímuverðlaunin

Leikarar ársins – Sögur, verðlaunahátíð barnanna

Blómin á þakinu heillaði leikhúsgesti á öllum aldri á síðasta leikári. Sýndar voru 50 troðfullar sýningar og nú heldur ævintýrið áfram! Undurfalleg og heillandi ný leiksýning fyrir yngstu börnin, byggð á bók sem hefur notið mikilla vinsælda allt frá því að hún kom fyrst út árið 1985 og hefur unnið sér sess sem sígild perla innan íslenskra barnabókmennta.

SVEITIN Á SVÖLUNUM – ÓÞEKKIR GAMLINGJAR – HRESSAR HÆNUR

Þegar Gunnjóna þarf á gamals aldri að flytja úr sveitinni sinni í borg stendur hún frammi fyrir ýmsum áskorunum sem fylgja því að aðlagast nýjum heimkynnum. Í fjölbýlishúsinu sem hún flytur í býr forvitið barn sem fylgist með óvenjulegum aðferðum gömlu konunnar við að búa sér nýtt heimili, enda er engu líkara en Gunnjóna ætli að flytja sveitina með sér til borgarinnar.

Börnin í sýningunni voru valin leikarar ársins á Sögum-verðlaunahátíð barnanna.

Aldursviðmið: 2ja-8 ára.

Leikarar: Edda Arnljótsdóttir, Örn Árnason, Dagur Rafn Atlason, Inga Sóllilja Arnarsdóttir.

Byggt á bók eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og Brian Pilkington

-

Leikgerð og leikstjórn: Agnes Wild

Leikmynd, búningar og brúður: Eva Björg Harðardóttir

Tónlist: Sigrún Harðardóttir

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger