© 2025 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
6. - 21. september
Miðaverð frá
0 kr.
Sýning ársins sýnd þriðja árið í röð
Verðlaunasýning sem lætur engan ósnortinn!
4 Grímuverðlaun
• Sýning ársins
• Leikrit ársins
• Leikkona ársins
• Tónlist ársins
???? Morgunblaðið
???? Heimildin
„Saknaðarilmur er einstakt og magnþrungið leikverk ... túlkun Unnar verður dáleiðandi. Hún er gjörsamlega stórkostleg í hlutverkinu.“ Lestrarklefinn
„sálarskúrandi reynsla ... þvílík snilld!“ TMM
Verkið Saknaðarilmur er nú sýnt þriðja leikárið í röð, vegna fjölda áskorana, enda hefur sýningin notið einstæðra vinsælda og snert áhorfendur djúpt. Saknaðarilmur var sigurvegari Grímunnar í fyrra, hlaut verðlaunin sýning ársins, leikrit ársins, leikkona ársins og tónlist ársins. Magnaður efniviður Elísabetar Jökulsdóttur öðlast nýtt líf á leiksviðinu í meðförum sama listræna teymis og skapaði tímamótasýninguna Vertu úlfur. Einstaklega áhrifamikil sýning, gædd sjónrænum töfrum, um viðkvæm en brýn málefni sem snerta okkur öll.
ÁFÖLL – BERSKJÖLDUN - KYNSLÓÐIR KVENNA
Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða?
Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir
eftir Unni Ösp Stefánsdóttur
byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Leikstjórn: Björn Thors
Leikmynd: Elín Hansdóttir
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Tónlist: Ólöf Arnalds, Skúli Sverrisson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Hljóðhönnun: Skúli Sverrisson, Aron Þór Arnarsson, Ólöf Arnalds
Sviðshreyfingar: Margrét Bjarnadóttir