Vínskólinn á Spritz

Spritz Venue

7 viðburðir

Miðaverð frá

11.990 kr.

Vínskólinn á Spritz er líflegt vínnámskeið þar sem fólk lærir undirstöðuatriðin um vín á einni kvöldstund. Námskeiðið er létt og skemmtilegt og hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Það fylgir charcuterie bakki með hverjum seldum miða með ostum, súrdeigsbrauði og salami.

Markmið námskeiðsins er að fræðast á skemmtilegan hátt um vín og að kynnast okkar eigin smekk á víni betur og hvernig á að para það með mat.

Námskeiðið er haldið í glæsilega salnum á Spritz Venue, Rauðarárstíg 27 og tekur um það bil 2.5 klst.

Það verða að lágmarki 6 að bóka svo námskeið sé haldið og það eru 16 sæti í boði.

Fylgist með gangi mála á Facebook og Instagram síðu Vínskólans á Spritz!

Námskeiðin eru þrennskonar:

**Vínskólinn 1 - sígilda námskeiðið okkar (með nýjum vínum)
**Á námskeiðinu förum yfir það hvernig vín verður til, hvernig á að para það með mat, hvernig á að þekkja þessar helstu þrúgur og smökkum saman 7 mismunandi sérvalin vín.

Kennari námskeiðsins er sommelierinn (vínsérfræðingurinn) Halldór Guðmundssson en hann hefur um árabil verið áberandi í veitingalífi borgarinnar.

Ítölsk vín - Nýtt námskeiðÁ námskeiðinu förum yfir ítölsk vín, hvað gerir þau sérstök og lærum að skilja ítalska vínmenningu við smökkum saman 7 mismunandi sérvalin vín frá allri Ítalíu.

Markmið námskeiðsins er að fræðast á skemmtilegan hátt um vín og að kynnast okkar eigin smekk á víni betur og hvernig á að para það með mat.

Námskeiðið er haldið í glæsilega salnum á Spritz Venue, Rauðarárstíg 27.

_Vínvísakvöld!

Heiðrún Mjöll og Brynhildur koma og kenna í Vínskólanum Spritz þann 16. október og 6. nóvember.

Heiðrún er þekkt sem vínkonan á TikTok ásamt því að bera titilinn Sommelier. Heiðrún hefur ekki bara 10 ár að baki í veitingageiranum heldur rak hún einnig Port9 Vínbar í mörg ár.

Brynhildur er eðlisfræðingur á daginn og vínfræðingur á kvöldin. Hún hefur framreitt fjölda vínglasa á Vínstúkunni 10 Sopum og liggur hennar sérfræði á sviði náttúruvína.

Saman smökkum við 7 vel valin vín hvaðan af um heiminn, tölum um vín á mannamáli, smökkum, gleðjumst og lærum._

Það verða að lágmarki 6 að bóka svo námskeið sé haldið og það eru 16 sæti í boði.

Fylgist með gangi mála á Facebook og Instagram síðu Vínskólans á Spritz!

Við hlökkum til að taka á móti þér!
Halldór Guðmundsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger