Lára og Ljónsi - Jólasaga

Þjóðleikhúsið

12 viðburðir

Miðaverð frá

4.950 kr.

**Hugljúft barnaleikrit um hin ástsælu Láru og Ljónsa, í aðdraganda jólanna
**

Bækur Birgittu Haukdal um Láru og Ljónsa njóta ómældra vinsælda hjá íslenskum börnum, og nú birtast þessar ástsælu persónur í fyrsta sinn á leiksviði. Leikverkið hentar vel yngstu áhorfendunum og er tilvalin skemmtun í aðdraganda jólanna. Birgitta Haukdal hefur samið ný lög fyrir leiksýninguna.

Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppáhalds mjúkdýrið hennar Láru sem, eins og flestir vita, er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? Getur verið að hvarf hans tengist jólasveinunum á einhvern hátt?

Saga: Birgitta Haukdal

Leikgerð: Guðjón Davíð Karlsson

Teikningar: Anahit Aleqsanian

Aldursviðmið: 2ja til 7 ára.

Leikskrá

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger