Kvennaráð

Rauða Húsið, Eyrarbakka

•

6 shows

Ticket prices from

ISK 3,500

Leikfélag Eyrarbakka mun frumsýna leikritið Kvennaráð eftir Sellu Páls í Rauða Húsinu á Eyrarbakka.

Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina, forstjórann Birnu, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina kínversk/íslensku heimilishjálp Mei um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Mei henni á óvart.

Hulda Ólafsdóttir leikstýrir.

Leikarar eru Auður Elín Hjálmarsdóttir, Elka Long Rúnarsdóttir og Feng Hannesdóttir.

Eygerður Þórisdóttir sér um búninga.

Sýning á hannyrðum eftir konur á Eyrarbakka verður fyrir sýningu og í hléi.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger