Kvennaráð

Rauða Húsið, Eyrarbakka

•

6 sýningar

Miðaverð frá

3.500 kr.

Húmor, spenna og uppgjör mæðgna.

Hvað gerist þegar ekkja á níræðisaldri ákveður að hrista verulega upp í tilverunni og taka stjórnina í eigin hendur?

Í leikritinu Kvennaráð kynnumst við Þorgerði, sem hefur staðið í skugga eiginmanns síns stærstan hluta ævinnar. Þegar hann fellur frá ákveður hún að breyta út af vananum, selja gömlu Kjarvalsmálverkin á uppboði og gera loksins það sem hana sjálfa langar til. Þetta nýfengna sjálfstæði og frelsisþrá fellur hins vegar í afar grýttan jarðveg hjá dóttur hennar, Birnu.

Birna er framagjörn og nútímaleg athafnakona um fimmtugt, sem er alltaf á hlaupum milli funda. Henni blöskra gjörðir móður sinnar og óttast að þær ógni orðspori föðurins og fjölskyldunnar. Upphefst þá mjög beitt og fyndið uppgjör þessara tveggja ólíku kvenna. Þorgerður stendur þó ekki ein í baráttunni, því í kínversk-íslensku húshjálpinni Mei, finnur hún bæði andlegan sálufélaga og óvæntan bandamann.

Kvennaráð er snjallt og spennuþrungið leikrit um kynslóðamun og fjölskylduerjur. Verkið veltir upp spurningum um smekk, frelsi og virðingu.

  Höfundur: Sella Páls  

Hulda Ólafsdóttir leikstýrir.

Leikarar eru Auður Elín Hjálmarsdóttir, Elka Long Rúnarsdóttir og Feng Hannesdóttir.

Eygerður Þórisdóttir sér um búninga.

Sýning á hannyrðum eftir konur á Eyrarbakka verður fyrir sýningu og í hléi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger