Hringi eftir smá!

Tjarnarbíó

•

3 dates

Ticket prices from

ISK 6,900

Sóley Kristjáns snýr aftur með glænýtt uppistand, Hringi eftir smá!

Að þessu sinni tekur Sóley fyrir tengsl og þær fáránlegu og fyndnu flækjur sem geta fylgt þeim. Þörfin fyrir að tilheyra og vera hluti af er sterk – en samt safnast upp hjá okkur ósvöruð skilaboð og símtöl, svo ekki sé minnst á kaffi- og matarboðin sem hanga enn í lausu lofti.

Hringi eftir smá! er persónuleg og stórskemmtileg uppistandssýning um allt vesenið sem fylgir því að þurfa á hvort öðru að halda.

Tilvalið tækifæri til að fara með einhverjum sem þú ert alltaf á leiðinni að hringja í eftir smá!

Sóley Kristjáns hefur rutt sér til rúms á undanförnum árum í íslensku uppistandi með sínum einlæga, bráðfyndna og fræðandi stíl og sýnt fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó og út um allt land.

Leikstjórn: Dóra Jóhannsdóttir

Handritshöfundar: Sóley Kristjáns og Dóra Jóhannsdóttir.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger