© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
3 viðburðir
Miðaverð frá
6.900 kr.




Sóley Kristjáns snýr aftur með nýja uppistandssýningu, Hringi eftir smá!
Við byrjum lífið sem við sjálf. Síðar meir tekur við tími þar sem við erum að reyna að passa inn, fylgja handritum sem enginn veit hver skrifaði og standast ósagðar væntingar. Á meðan erum við alltaf á leiðinni að hringja eftir smá, heyra í hvort öðru eftir smá og hittast í kaffi eftir smá. En kaffibollarnir safnast upp, skilaboðin bíða svars og tengslin sitja á hakanum.
Í sinni þriðju uppistandssýningu veltir Sóley fyrir sér tengslum, að tilheyra, ósvöruðu skilaboðunum, misgóðri félagsfærni og öllu því sem gerir lífið bæði flókið og stórkostlega skemmtilegt.
Þetta verður fræðandi (Sóley sleppir ekki tækifæri til að fræða!), einlægt og fyndið - enda uppistand!
Nú er bara spurning hvort þú mætir – eða ætlar að gera það eftir smá …
Handritshöfundar: Sóley Kristjáns og Dóra Jóhanns
Leikstjórn: Dóra Jóhanns

