© 2026 Tix Ticketing
Tónabíó, Skipholt 33
•
October 22
Ticket prices from
ISK 4,500




Jónas Björgvinsson - Lífsins bók
Platan hefur verið tæp þrjú ár í smíðum og kemur út á vínyl og öllum helstu tónlistarveitum á tónleikadeginum. Upptökustjóri er Sigurður Guðmundsson og við gerð plötunnar vann Jónas meðal annars með Magnúsi Þór Sigmundssyni, sem samdi texta við þrjú laga hennar. Magnús Þór verður sérstakur gestur kvöldsins.
Á tónleikunum verður Lífsins bók flutt í heild sinni í fyrsta sinn. Þá er ekki útilokað að Jónas fletti einnig aftur í tímann og taki valin lög af fyrri plötum sínum.
Með Jónasi á sviðinu verður einvalalið tónlistarmanna:
Sigurður Guðmundsson
Helgi Svavar Helgason
Tómas Jónsson
Valbjörn Snær Lilliendahl
Þetta verður einstakt útgáfukvöld þar sem nýr kafli í tónlist Jónasar Björgvinssonar er opnaður í stóra salnum í Tónabíói.
Bruggstofa RVK í Tónabíói er opin frá kl 13:00 á miðvikudögum en Andrea Jónsdóttir mun hefja leikinn, hita upp og snúa skífum þar frá kl. 19:00
Tónleikar hefjast síðan stundvíslega kl. 20:00.

