© 2026 Tix Ticketing
Reykjavík City Theatre
•
12 shows
Sale starts
April 29, 2026, 11:59 PM
(in 2 days)




Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýndur verður á Stóra sviði Borgarleikhússins í nóvember 2026.
Þegar Trölli stal jólunum er frábær söngleikur fyrir alla fjölskylduna og hentar vel börnum frá 4-5 ára aldri. Sýningin verður 2 tímar með hléi og er sýnd á Stóra sviðinu.
Þetta er stórsýning með stórum hópi leikara og dansara.
Trölli lifir einmana lífi með hjarta sem er „tveimur stærðum of lítið”. Hann þolir ekki jólin en í næsta bæ eru þau haldin hátíðleg með söng, gjöfum og kræsingum, Trölla til mikils ama. Eitt árið tekur hann sig til og reynir að stela jólunum í skjóli nætur, með því að fjarlægja allt sem á þau minnir. Þegar jólasöngvar hljóma enn morguninn eftir kemst Trölli að því að jólin felast ekki í veraldlegum hlutum - heldur í hjörtum fólks.
Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður á hinu sívinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957.
Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna!
https://www.borgarleikhus.is/syningar/thegar-troelli-stal-jolunum

