© 2026 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
34 sýningar
Miðaverð frá
7.900 kr.




Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýndur verður á Stóra sviði Borgarleikhússins í nóvember 2026.
Þegar Trölli stal jólunum er frábær söngleikur fyrir alla fjölskylduna og hentar vel börnum frá 4-5 ára aldri. Sýningin verður 2 tímar með hléi og er sýnd á Stóra sviðinu.
Jólahátíðin er tími samveru, söngs… og prakkaraskapar! Í fyrsta sinn kemur hinn ástsæli söngleikur Þegar Trölli stal jólunum! til Evrópu og verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Sýningin er byggð á klassískri sögu eftir Dr. Seuss þar sem jólaþorpið Hvervík lifnar við með grípandi tónlist og litríkum persónum og aðalpersónu okkar Trölla - fúlum, grænum prakkara sem ætlar sér að eyðileggja jólin, áður en allt tekur óvænta stefnu.
Stórskemmtileg fjölskyldusýning með hinum óviðjafnanlega Björgvini Franz Gíslasyni í hlutverki Trölla. Hvort sem þú þekkir Trölla eða ert að kynnast honum í fyrsta sinn, er þetta einstakt tækifæri til að upplifa þennan heimsklassa söngleik og komast um leið í jólaskap. Komdu og láttu hjartað þitt stækka aðeins fyrir jólin!
Handrit og söngtextar: Timothy Mason
Tónlist: Mel Marvin
Viðbótartónlist og söngtextar: Albert Hague og Dr. Seuss
Þýðing: Salka Guðmundsdóttir
Leikstjóri: Valur Freyr Einarsson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Leikarar:
Björgvin Franz Gíslason
Björn Stefánsson
Esther Talía Casey
Halldór Gylfason
Hilmir Jensson
Pétur Ernir Svavarsson
Sigrún Edda Björnsdóttir
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Dansarar:
Birna Karlsdóttir
Björn Dagur Bjarnason
Gabriel Marling Rideout
Karen Sif Kamgan
Karitas Lotta Tulinius
Rúnar Bjarnason
Barnaleikhópur:
Birkir Frosti Kjartansson
Eva Lovísa Heimisdóttir
Eva Sigríður Andradóttir
Helga Matthildur Diallo
Hlynur Axel Bjarkason
Iðunn Eldey Stefánsdóttir
Kári Páll Thorlacius
Nína Sólrún Tamimi
Rafney Birna Guðmundsdóttir
Sindri Gunnarsson
Sól Óskarsson Herrera
Theodór Elí Kristjánsson

