Stúdentafagnaður Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík 2026

Gullhamrar

May 30

Ticket prices from

ISK 15,900

Stúdentafagnaður Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík 2026 verður haldinn í Gullhömrum þann 30. maí.

Segja má að Stúdentafagnaðurinn, einnig nefndur Júbilantaballið, sé “Móðir allra árshátíða”. Um er að ræða gala-viðburð með sitjandi borðhaldi, ræðuhöldum og dansleik með lifandi tónlist í félagsskap nýstúdenta og annarra afmælisárganga. Þannig skemmta sér saman gamlir, ungir og miðaldra sem allir bindast þeim órjúfanlegu böndum sem felast í því að vera MR-ingar. Bekkir og árgangar hittast gjarnan í einkasamkvæmum til að rifja upp stúdentsárin og treysta vinaböndin áður en haldið er á fagnaðinn.

Stúdentafagnaðurinn ár hvert er afar glæsilegur og eftirminnilegur en oft eru fleiri en ein kynslóð úr sömu fjölskyldu á ballinu sem gerir andrúmsloftið einstakt.

Matseðil kvöldsins má finna hér að neðan:

Matseðill:

  • Forréttur: Rjómalöguð sælkera grænmetissúpa með nýbökuðu brauði

  • Aðalréttur: Grilluð nautalund með trufflu kartöfluköku og Madeirasósu

  • Eftirréttur: Vanilluís gelato með súkkulaðibitum

Vegan matseðill:

  • Forréttur: Sælkera grænmetissúpa með nýbökuðu brauði

  • Aðalréttur: Innbakað grænmeti með búlgur og villisveppasósu

  • Eftirréttur: Sorbet ís

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger