© 2026 Tix Ticketing
Reykjavík City Theatre
•
11. - 12 June
Ticket prices from
ISK 7,300




Þar sem við mætumst
Íslenski dansflokkurinn tekur yfir Litla svið Borgarleikhússins með Þar sem við mætumst, samsköpunarverki dansara flokksins.
Í líkama dansarans býr uppsöfnuð reynsla, minni og þekking, sem mótast hefur í gegnum ótal sköpunarferli. Í verkinu fá dansararnir rými til sjálfstæðrar sköpunar, þar sem þau leiða ferlið sjálf og ögra hefðbundnum valdastrúktúr með að stíga samtímis inn í hlutverk dansara og danshöfundar.
Áhorfendum er boðið upp á kvöldstund þar sem ólíkar raddir mætast í sameiginlegri hugleiðingu um kraftinn sem felst í hlustun og samhljómi.

