© 2026 Tix Ticketing
Hafnafjörður
•
22 April
Ticket prices from
ISK 9,500




HEIMA 2026
Armbönd á HEIMA-hátíðina verða afhent á hátíðardag (22. Apríl) í Ægi brugghúsi frá 14.00 til 18.00 gegn framvísun miða.
HEIMA fer fram síðasta vetrardag eins og alltaf - 22. apríl í miðbæ Hafnarfjarðar.
HEIMA-hátíðin hefur rækilega fest sig í sessi sem skemmtileg og einstök tónlistarhátíð þar sem boðið er upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir og listamenn eiga almennt að venjast.
Þeir sem koma fram á HEIMA í ár eru:
Sváfnir Sigurðarson
Elinborg (Færeyjar)
Stína Ágústsdóttir
Kristmundur Axel
Tríó Bjössa Thor
Palli og Benni
Kusk og Óviti
Klara Einars
Skítamórall
Pétur Ben
Ukulellur
Mugison
Oyama
Þau
+ Andrea Jóns
Sem fyrr munu Hafnfirðingar opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fríkirkjan í Hafnarfirði verður eitt af HEIMA – húsum eins og undanfarin ár og hátíðin nýtir einnig sviðið í Bæjarbíói sem endurspeglar fjölbreytileika hátíðarinnar – allskonar hús og allskonar tónlist.
Fjörukráin er nýr samstarfsaðili og þar verður spilað í ár í Hofinu auk þess sem Fjörukráin ætlar að vera með tilboð á gistingu og mat. Það er alveg tilvalið að skella sér í stutta borgarferð í Hafnarfjörð síðasta vetrardag.
Listamennirnir/nöfnin eru fjórtán í ár og allir koma fram tvisvar í sitt hvoru HEIMA-húsinu í miðbænum. Það eru ekki allir að spila á sama tíma þannig að þeir sem eru duglegastir að rölta milli húsa sjá flest atriði.
Hátíðin hefst í Ægi Brugghús klukkan 14.00 þar sem armbönd og prentuð dagskrá verða afhent. Þar verður boðið upp á eitt og annað skemmtilegt auk þess sem barinn verður opinn og hægt að smakka á sérbrugguðum HEIMA-bjór Ægis.
Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast kl. 19.30 í Fríkirkjunni að lokinni formlegri setningu og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00.
Undanfarin ár hefur verið einskonar lokaatriði HEIMA í Bæjarbíói og þannig verður það líka í ár – en við ætlum að bjóða upp á annað lokaatriði í ÆGI 220 á sama tíma. Hvort tveggja hefst uppúr klukkan 23 og endar ?
Um miðnættið hefst svo eftirpartí í ÆGI þar sem Dj. Andrea Jóns ætlar að fá fólk til að dansa fram á nótt.
HEIMA er tónlistarhátíð sem býður uppá nánd flytjenda og gesta sem og fjölbreytta tónlist fyrir allskonar fólk á öllum aldri.
Bestu vinir HEIMA eru Hafnarfjarðarbær, Bæjarbíó, Fjörukráin, Ægir brugghús og Rás 2

