DANSAÐ FYRIR ÞIG

Reykjavík City Theatre

2 November

Ticket prices from

ISK 0

Borgarleikhúsið, Listabraut 3 @13:00

DANSAÐ FYRIR ÞIG

Dansarar framtíðar frá ýmsum dansskólum og danshópum koma saman, sýna listir sínar á Stóra sviðinu og fagna fjölbreytileika dansins, en íslenska danssenan er jafn litrík eins og hún er stór.

Heiðursgestir frá Íslenska dansflokknum hefja sýningu.

Sýningin er einn af  fjölmörgum viðburðum Unglistar, listahátíðar ungs fólks sem er vettvangur fyrir ungt upprennandi listafólk þar sem skáldskapur og myndsköpun fá að flæða frjálst, í takti við tónlistarveislur, óheftan dans, lifandi leiklist og aðra viðburði þar sem sköpunargleðin er í öndvegi.

Viðburðarstjóri: Rebekka Sól Þórarinsdóttir

Framkvæmdastjórn Unglistar: Ása Hauksdóttir

Skólar og hópar sem taka þátt:

Danslistarskóli JSB

Listdansskóli Íslands

Listdansskóli Hafnarfjarðar

Dans Brynju Péturs

Dansskóli Birnu Björns

Dansgarðurinn - Óskandi

Klassíski Listdansskólinn

Listaháskóli Íslands

DansKompaní

Íslenski Dansflokkurinn

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger