© 2025 Tix Ticketing
Gróðurhús, Þelamörk 29
•
3. - 4 October
Ticket prices from
ISK 8,900
Bjórhátíð Ölverk 2025
Ölverk brugghús kynnir í sjötta sinn bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, drykkjar,- og matarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!
Bjórhátíðin fer fram helgina 3. til 4. október í heitu ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði
Staðfestir framleiðendur eru eftirfarandi en athugið að þessi listi er ekki endanlegur og mun hann uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:
Horn Brugghús (Höfn)
Mývatn öl ( Mývatn )
Ognatura ( Hafnarfirði )
Malbygg brugghús ( Reykjavík )
Mjólkursamsalan ( Selfoss/Reykjavík )
Litla brugghúsið ( Garður )
OY Brewing ( Færeyjar )
Hovdenak Distillery ( Reykjavík )
Smiðjan brugghús ( Vík )
Víking brugghús ( Akureyri )
Ölverk brugghús ( Hveragerði )
Gæðingur brugghús ( Kópavogur )
Dokkan Brugghús ( Ísafjörður )
Ægir brugghús ( Reykjavík )
Grugg & Makk ( Reykjavík )
Borg brugghús ( Reykjavík )
Húsavík Öl ( Húsavík )
Kjörís ( Hveragerði )
Djarfi ( Reykjavík )
RVK Brewing Company ( Reykjavík )
The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )
Brennivín ( Reykjavík )
KHB Brugghús ( Borgarfjörður Eystri )
Öldur Meadery ( Hella )
Fágun ( Ísland )
Bjórsetur Íslands ( Hólar í Hjaltadal )
Bruggsmiðjan Kaldi ( Árskógsandi )
Núllarinn ( Reykjavík )
Hella Brugghús ( Hella )
Segull 67 ( Siglufirði )
Eimverk ( Garðabæ )
Dagskrá
Föstudagurinn 3. október
17:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum
20:10 - Herra Hnetusmjör
21:00 - 00:00 FM Belfast (DJ)
Laugardagurinn 4. október
16:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum
20:10 - TBA
21:00 - 00:00 TBA
- Hagnýtar upplýsingar -
Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.
Miðaverð
Helgararmband 14.990,-
Föstudagsarmband 8.900,- ( takmarkað magn í boði )
Laugardagsarmband 8.900,- ( takmarkað magn í boði )
Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum (áfengir drykkir, óáfengir drykkir, sérgerðir ostar og einstakar ístegundir), tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, tónlistaratriði og danspartý.
Athugið smakkglösunum verður að skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en það verður hægt að kaupa glasið á 1000,-
Afhending armbanda
Fimmtudaginn 2. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.
Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 3. október og laugardaginn 4. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á veitingarstað Ölverk.
Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )
Gisting
Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.
Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is
Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu beint á móti bjórhátíðarsvæðinu.
Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingastað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að taka við pöntunum kl 21:00).
Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á olverk@olverk.is