© 2025 Tix Ticketing
Hjálmaklettur Borgarnesi
•
4 October
Ticket prices from
ISK 7,400
Álfastund
Málþing um álfa og huldufólk í heimabyggð verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 4. október 2025.
Flutt verða stutt erindi frá ólíkum sjónarhornum sjáenda, fræðafólks, listafólks og almennings og samtal tekið við þátttakendur um þennan óáþreifanlega hluta menningararfsins. Hér gefst þátttakendum einstakt tækifæri í heimabyggð til þess að hafa áhrif á og sameinast um að varðveita og halda þessum menningararfi lifandi fyrir komandi kynslóðir.
DAGSKRÁ
09:45 Húsið opnar
10:15 Álfastund sett
10:20-12:15 Fyrirlestrar
12:15-13:00 Hádegishlé - súpuhlaðborð og brauð, kaffi og spjall
13:00-14:15 Fyrirlestrar
14:15-14:30 Kaffi og kruðerí
14:30-15:30 Umræður/Vinnustofur
15:30 Álfastund slitið
Erindi og fyrirlesarar verða:
Undrun, töfrar og auðlindir
Bryndís Fjóla Pétursdóttir, völva og stofnandi Huldustígs ehf.
Angan Álfheima
Hraundís Guðmundsdóttir, skógfræðingur, ilmolíufræðingur og eimari
Lífssýn Erlu Stefánsdóttur
Bergþóra Andrésdóttir, bóndi, jógakennari og náttúruunnandi
Eykur þekking á hulduheimum virðingu fyrir náttúru landsins?
Gígja Árnadóttir, heldri borgari
Tilurð verksins Hulið
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðslistakona
Álfasögur Ólafs í Purkey og eldri heimildir um huldufólk
Jón Jónsson, þjóðfræðingur á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – Þjóðfræðistofu
Hidden people and hidden things: nature is more than we can see - ath. fyrirlesturinn fer fram á ensku!
Ole Martin Sandberg, heimspekingur við Háskóla Íslands
Í lokinn verða umræður/vinnustofur.
Þverfagleg stefnumótun, framtíðarsýn og ályktun skrifuð. Umsjón Bryndís Fjóla Pétursdóttir
Kaffi, te og vatn verður í boði yfir daginn.