Ljós í myrkri

Menningarfélag Akureyrar

2 April

Ticket prices from

ISK 9,900

Stórviðburður í Hofi

Atli Örvarsson - Ljós í myrkri

Hof, Akureyri
2. apríl kl. 16:00

Einstök tónlistarupplifun þar sem tónlist BAFTA verðlaunahafans Atla Örvarssonar leiðir áhorfendur í gegnum magnaðan hljóðheim sem inniheldur allt frá innilegum píanóverkum til epískrar kvikmyndatónlistar. Hljóðheim þar sem samspil sinfóníuhljómsveitar, kórs og rafhljóðfæra mætast í viðburði sem enginn vill missa af.

Bjarni Frímann stýrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi á verkum Atla. Verk sem eiga það sameiginlegt að hafa mótast af minningum hans um uppvaxtar ár sín á Akureyri. Þar sem myrkur vetrarins og fegurð norðursins varð að innblæstri fyrir tónlist um von, forvitni og ljósið í myrkrinu.

Ljós í myrkri er tónlistarferðalag frá Akureyri út í heim og aftur heim.

Fyrri hluti – Heima

Fyrri hlutinn er tileinkaður verkum af sólóplötum Atla, meðal annars 7 Cycles og You Are Here tónlist sem varð til eftir að hann flutti aftur heim til Akureyrar og fann þörf til að gefa út persónulegri verk, semja tónlist tónlistarinnar vegna.

Seinni hluti – Ljós í myrkri

Seinni hlutinn sameinar nýtt verk fyrir kór, hljómsveit og rafhljóðfæri Ljós í myrkri (Luminescence) og brot úr kvikmyndatónlist Atla, þar á meðal úr Babylon A.D. og BAFTA-verðlaunatónlistinni úr Silo (Apple TV+), sem að stórum hluta var samin á Akureyri.

 

Fram koma:

  • Atli Örvarsson

  • Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

  • Söngsveit SinfoniaNord

  • Þórhildur Örvarsdóttir

  • Raftríóið Tjara (Kjartan Hólm, Sindri Már Sigfússon, Francesco Fabris)

  • Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger