© 2025 Tix Ticketing
IÐNÓ
•
11 July
Ticket prices from
ISK 5,500
Þann 11. júlí stíga mörg stærstu nöfn í íslenska tónlistarheiminum á svið í Iðnó á Hátíð gegn landamærum.
Þar á meðal eru poppgoðsögnin Páll Óskar og heimsfrægi rússneski aktívístahópurinn Pussy Riot.
Auk þeirra koma fram Izleifur, Inspector Spacetime, Kusk & Óviti, Gróa, Alexander Jarl, Flesh Machine, Geðbrigði og DJ Óli Dóri.
Markmið hátíðarinnar er að skapa vitundarvakningu um réttindabaráttu fólks á flótta og þeirri erfiðu stöðu sem það býr við, bæði á Íslandi og um allan heim. Fólk á flótta eru manneskjur með rödd, líf og rétt til ferðafrelsis og öryggis.
Ljóst er að færri komast að en vilja. Þú vilt ekki missa af þessu magnaða kvöldi, þar sem tónlist og aktívismi mætast í dúndrandi og ógleymanlegri stemningu.
DAGSKRÁ:
19:00 – Gróa
19:40 – Kusk & Óviti
20:20 – Geðbrigði
21:00 – Flesh Machine
21:40 – Izleifur
22:20 – Inspector Spacetime
23:00 – Alexander Jarl
23:40 – Páll Óskar
00:20 – Pussy Riot
01:00 – DJ Óli Dóri
Nú eru tæp 17 ár liðin frá því að síðan hópur aktivista hljóp út á flugbrautina í Keflavík til að stöðva brottvísun flóttamannsins Paul Ramses árið 2008. Það var neistinn sem kom No Borders-hreyfingunni af stað – og baráttan er langt frá því að vera búin.
Vertu með þann 11. júlí, þegar við komum saman til að fagna frelsinu sem felst í virku andófi, til að minna á að baráttan heldur áfram og til að fræða fólk um aðstæður flóttafólks.
Lengi lifi barátta þeirra villtu og frjálsu!
Engin manneskja er ólögleg!
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.