© 2025 Tix Ticketing
Harpa
•
1. - 15 June
Ticket prices from
ISK 5,900
Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta íslenska barnaleikrit allra tíma.
Eftir að hafa verið sýnt fyrir fullu húsi í Hörpu á vormánuðum 2022 og aftur síðastliðið haust tilkynnum við að Ávaxtakarfan snýr aftur 31.maí
Sýningin hefur hlotið einróma lof sýningargesta og virðast aldnir jafnt sem ungir skemmta sér afar vel.
Leikarahópinn skipar einvala lið og er óhætt að segja að þar sé að finna marga af efnilegustu leikurum þjóðarinnar.
Gói leikstýrir hópnum styrkri hendi, Þorvaldur Bjarni sér um tónlistina eins og áður og Chantelle Carey sér um dansa og sviðshreyfingar.
Höfundur handrits er Kikka K. M. Sigurðardóttir.
Listrænir stjórnendur:
Leikstjórn: Gói Karlsson
Höfundur tónlistar og tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikmynda- og búningahönnuðir: Eva Signý Berger og Alexía Rós Gylfadóttir
Leikmyndasmiður: Svanhvít Thea Árnadóttir
Ljósahönnuður: Freyr Vilhjálmsson
Danshöfundur: Chantelle Carey
Leikgervi: Margrét R Jónasar
Framleiðandi: Þorsteinn Stephensen
Chantelle Carey danshöfundur::"Í vinnu minni með ungum dönsurum og listamönnum hef ég veitt því athygli hve miklar mætur þau hafa öll á ávaxtakörfunni þannig að ég er ótrúlega spennt fyrir að taka þátt í þessari uppfærslu með frábæru hæfileikafólki."
Kikka K. M. Sigurðardóttir, höfundur Ávaxtakörfunnar: "Mér finnst frábært að nýtt fólk sé að setja Ávaxtakörfuna á svið en ekki ég og listrænir stjórnendur sem ég vinn venjulega með. Ég hef venjulega verið framleiðandi líka en er það ekki núna og er mjög spennt að sjá útkomuna".
Sýningin er um 120 mínútur að lengd með einu hléi