© 2024 Tix Ticketing
Harpa
•
12 December
Borgardætur í Norðurljósum
Allt frá útkomu "Jólaplötunnar", árið 2000, hafa hinar óviðjafnanlegu Borgardætur, Andrea Gylfa, Ellen Kristjáns og Berglind Björk haldið jólatónleika í desember við frábærar undirtektir.
Þær koma nú saman á ný eftir nokkurra ára hlé og það verður allt vitlaust í boðinu.
Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir í Norðurljósasal Hörpu.
Á efnisskránni verða sem fyrr jólalög í bland við glens, grín og spuna að hætti dætranna.
Einnig er von á Skáldkonunni góðu að handan.
Óviðjafnanleg skemmtun, einstök blanda af hátíðleika og hlátri fyrir fullorðna.
Eyþór Gunnarsson útsetjari og píanóleikari er tónlistarstjóri dætranna að venju.
Með honum spila Magnús Trygvason Eliassen á trommur og Andri Ólafsson á bassa.
GÓÐA SKEMMTUN!
Viðburðarhaldari: Borgardætur