Skíthrædd

Þjóðleikhúsið

7. - 28 March

Ticket prices from

ISK 2,900

Unnur leikur, syngur og dansar sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin.

Unnur Elísabet hefur verið skíthrædd í 40 ár! Hrædd við myrkrið, fífla, vindkviður og stundum eplabita. En nú er komið gott.

Í þessari stórskemmtilegu sýningu fer hún yfir það sem hefur hamlað henni í lífinu hingað til – í leik, dansi og söng. Með henni á sviðinu er Stórsveit eða tveggja manna band, þetta er lítið svið.

Unnur sýnir að ef það er hægt að breyta hræðslu í létt Broadway-númer þá er allt mögulegt.

Með henni á sviðinu til halds og trausts eru Annalísa Hermannsdóttir og Einar Lövdahl Gunnlaugsson.

Tónlistastjóri er Halldór Eldjárn.

Sýningin er í leikstjórn Katrínar Halldóru Sigurðardóttur.

Sýningastjóri og ljósahönnuður er Sigurður Starr Guðjónsson.

Búningahönnuður: Sigrún Jörgensen.

Markaðstjóri Mikael Emil Kaaber.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger