Hver vill vera prinsessa?

Tjarnarbíó

8. - 15 March

Ticket prices from

ISK 3,900

Þrjár prinsessur mætast óvænt og átta sig allar á að þær eru að díla við sama vandamálið. Þær eru að bíða eftir prinsinum sínum. Þær geta ómögulega lifað hamingjusamlega til æviloka nema hann komi.....eða hvað?

Óvæntir atburðir henda þeim af stað í ferðalag sem mun breyta lífi þeirra að eilífu en prinsessurnar læra að þeim eru allir vegir færir.

,,Hver vill vera prinsessa?" er nýr söngleikur, eftir Raddbandið og Söru Martí, í anda Disney ævintýranna sem allir þekkja og elska. Sýningin er stútfull af litríkri og töfrandi tónlist eftir Stefán Örn Gunnlaugsson og Rakel Björk Björnsdóttur.

Raddbandið skipa söng- og leikkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. Þær fara með hlutverk prinsessanna í söngleiknum og Sara Martí leikstýrir, en hún hefur leikstýrt ótal barnaleiksýningum á borð við Karíus og Baktus í Hörpu, Jólaævintýri Þorra og Þuru og síðast Umskiptingnum í Þjóðleikhúsinu.

„Ég mæli eindregið með þessari sýningu... Bæði börn og fullorðnir skemmta sér við áhorf... Hvert einasta lag er litríkt og fallega sungið, og kómískar tímasetningar leikaranna eru virkilega góðar" - Sjöfn Asare, Lestarklefinn.

"Þetta er litrík, falleg og stórskemmtileg sýning með virkilega vel sömdum lögum sem þessar fínu söngkonur syngja af list." - Silja Aðalsteinsdóttir, TMM.

Sýningin er 50 mínútur að lengd

LISTRÆNIR STJÓRNENDUR

Höfundar: Rakel Björk Björnsdóttir, Viktoría Sigurðardóttir, Sara Martí og Auður Finnbogadóttir

Leikstjórn: Sara Martí

Tónlist: Rakel Björk Björnsdóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson

Lagatextar: Viktoría Sigurðardóttir og Rakel Björk Björnsdóttir

Dans- og sviðshreyfingar: Viktoría Sigurðardóttir, Auður Finnbogadóttir og Rakel Björk Björnsdóttir

Leikmynd: Auður Ösp Guðmundsdóttir

Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson og Kjartan Darri Kristjánsson

Teikningar og myndvinnsla: Usman Naveed

Búningar: Viktoría Sigurðardóttir

Hljóðhönnun og tæknikeyrsla: Kristín Waage

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger