Söngvaskáld | gugusar

Salurinn

23 November

Ticket prices from

ISK 6,900

Tónleikaröðin Söngvaskáld beinir kastljósinu að tónlistarfólki sem semur og flytur eigin tónlist.

Fram koma JóiPé x Króli, JFDR, gugusar, Emmsjé Gauti og Bríet.

gugusar pródúserar og semur öll sín lög ein síns liðs. Hún gaf út sína fyrstu breiðskífu Listen To This Twice þegar hún var einungis 15 ára gömul. Önnur breiðskífa gugusar kom út árið 2021. Báðar breiðskífur voru tilnefndar í flokknum Plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. gugusar vann einnig í flokknum Flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022.Það er erfitt að skilgreina tónlist gugusar samkvæmt einni tónlistarstefnu. Tónlistin hennar fer um víðan völl og á ekki heima í neinu boxi. Tónlistin getur verið draumkennd, róleg og lagræn, en á svipstundu breytist það í drum & bass. gugusar er óhrædd við að skrifa og semja bæði á íslensku og ensku, eða jafnvel á engu tungumáli, þar sem hún ómar og syngur án orða. Tónlist gugusar er tilraunakennd og spennandi, þar er erfitt að segja hvað er handan við hornið þegar maður leggur við hlustir.

Söngvaskáld er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila frumsamin lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar aðferðir tónlistarfólks við lagasmíðar og gefur þjóðþekktum lögum meiri dýpt.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger