Berjadagar tónlistarhátíð 2024

Many venues

14. - 16 June

Sale starts

18 October 2024 at 06:33

()

Berjadagar tónlistarhátíð 2024 

Hlýðið á kvöldtónleika á glæsilegu sviði Menningarhússins, Tjarnarborg, í miðjum Ólafsfjarðarbæ.

Íslenskir hljóðfæraleikarar og söngvarar láta ljós sitt skína!

Sérstakir gestir eru systkinin KK & Ellen (16. júní) og færeyski píanóleikarinn Jóhannes Andreasen (15. júní)  

Sjá alla viðburði: www.berjadagar.is

**Föstudagur 14. júní : Tónleikar og ,Brasilískt kvöld'**

20:00 - Hvað ertu tónlist?Fram koma: Sólveig Thoroddsen söngur, barrokkharpa og gotnesk harpa, Bára Grímsdóttir kvæðakona, Sergio Coto Blanco endurreisnarlútur, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran

21:30 - ,Brasilískt og aftur brasilískt’ Menningarhúsið TjarnarborgFram koma: Guito Thomas söngur og gítar, Rodrigo Lopes slagverk o.fl.Ath. Aðgöngumiði á upphafskvöldið er selt í gegnum tónleika kl. 20:00 og hægt að kaupa við innganginn.

Laugardagur 15. júní : Tónleikar 

20:00 - _Færeyjar og Ísland dansa tangó_Fram koma: Jóhannes Andreasen píanó, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran, Hrólfur Sæmundsson baritón, Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Ármann Helgaon klarinett

Sunnudagur 16. júní : Tvennir tónleikar

20:00 - Tveir flyglar í Tjarnarborg

21:30 - KK & Ellen - 80 ára íslenskt lýðveldi! - Kaupa miða HÉR

Listræn stjórnun:Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari

Listamenn:KK & EllenFlygladúóið SóleySigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópranJóhannes Andreasen píanóHrólfur Sæmundsson baritónSólveig Thoroddsen barokkharpa, söngur og gotnesk harpaLaufey Sigrún Haraldsdóttir píanóKarel Tjörvi Ránarson Reina grafísk hönnunSergio Coto Blanco endurreisnarlúturÓlöf Sigursveinsdóttir sellóDr. Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingurSólborg Valdimarsdóttir píanóÁrmann Helgason klarínettGuito Thomas gítar og söngurSigursveinn Magnússon píanóSigrún Valgerður Gestsdóttir sópranRodrigo Lopes slagverk

Um hátíðina

Berjadagar er fjölskylduvæn þriggja til fjögurra daga tónlistarhátíð sem fram fer árlega í Ólafsfirði* í Fjallabyggð, Norðurlandi eystra. Hátíðin var stofnuð 1998 og hefur fest sig í sessi. Frítt er inn fyrir 18 ára og yngri á alla viðburði hátíðarinnar! Á Berjadögum tónlistarhátíð koma fram ólíkir hljóðfæraleikarar til að flytja list sína í kynngimögnuðum tónlistarsölum sem gera upplifun af klassískum tónleikum einstaka. Í Ólafsfirði eru 14 dalir og hátíðin býður því upp á göngu með náttúruskoðun, brunch á Kaffi Klöru, skógrækt, listsýningu í Pálshúsi og ekki síst glæsilega tónleika í Menningarhúsinu Tjarnarborg og í Ólafsfjarðarkirkju. Á hátíðinni hljómar klassísk tónlist, djass, brasilísk tónlist, þjóðlög, íslensk sönglög og ópera. Berjadagar voru stofnaðir með einkunnarorðin ,,Náttúra og listsköpun” í huga af Erni Magnússyni píanóleikara. Listrænn stjórnandi frá 2013 er bróðurdóttir hans Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari.

*Ólafsfjörður liggur 60 km norður af Akureyri og þar er hinn frægi Ólafsfjarðarmúli. Keyrsla milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er ca. 20 mínútur og keyrsla milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar er ca 15 mínútur.

Dates

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger