© 2024 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
14. - 16. júní
Sala hefst
21. desember 2024, 14:40
()
Berjadagar tónlistarhátíð 2024
Hlýðið á kvöldtónleika á glæsilegu sviði Menningarhússins, Tjarnarborg, í miðjum Ólafsfjarðarbæ.
Íslenskir hljóðfæraleikarar og söngvarar láta ljós sitt skína!
Sérstakir gestir eru systkinin KK & Ellen (16. júní) og færeyski píanóleikarinn Jóhannes Andreasen (15. júní)
Sjá alla viðburði: www.berjadagar.is
**Föstudagur 14. júní : Tónleikar og ,Brasilískt kvöld'**
20:00 - Hvað ertu tónlist?Fram koma: Sólveig Thoroddsen söngur, barrokkharpa og gotnesk harpa, Bára Grímsdóttir kvæðakona, Sergio Coto Blanco endurreisnarlútur, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran
21:30 - ,Brasilískt og aftur brasilískt’ Menningarhúsið TjarnarborgFram koma: Guito Thomas söngur og gítar, Rodrigo Lopes slagverk o.fl.Ath. Aðgöngumiði á upphafskvöldið er selt í gegnum tónleika kl. 20:00 og hægt að kaupa við innganginn.
Laugardagur 15. júní : Tónleikar
20:00 - _Færeyjar og Ísland dansa tangó_Fram koma: Jóhannes Andreasen píanó, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran, Hrólfur Sæmundsson baritón, Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Ármann Helgaon klarinett
Sunnudagur 16. júní : Tvennir tónleikar
20:00 - Tveir flyglar í Tjarnarborg
21:30 - KK & Ellen - 80 ára íslenskt lýðveldi! - Kaupa miða HÉR
Listræn stjórnun:Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari
Listamenn:KK & EllenFlygladúóið SóleySigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópranJóhannes Andreasen píanóHrólfur Sæmundsson baritónSólveig Thoroddsen barokkharpa, söngur og gotnesk harpaLaufey Sigrún Haraldsdóttir píanóKarel Tjörvi Ránarson Reina grafísk hönnunSergio Coto Blanco endurreisnarlúturÓlöf Sigursveinsdóttir sellóDr. Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingurSólborg Valdimarsdóttir píanóÁrmann Helgason klarínettGuito Thomas gítar og söngurSigursveinn Magnússon píanóSigrún Valgerður Gestsdóttir sópranRodrigo Lopes slagverk
Um hátíðina
Berjadagar er fjölskylduvæn þriggja til fjögurra daga tónlistarhátíð sem fram fer árlega í Ólafsfirði* í Fjallabyggð, Norðurlandi eystra. Hátíðin var stofnuð 1998 og hefur fest sig í sessi. Frítt er inn fyrir 18 ára og yngri á alla viðburði hátíðarinnar! Á Berjadögum tónlistarhátíð koma fram ólíkir hljóðfæraleikarar til að flytja list sína í kynngimögnuðum tónlistarsölum sem gera upplifun af klassískum tónleikum einstaka. Í Ólafsfirði eru 14 dalir og hátíðin býður því upp á göngu með náttúruskoðun, brunch á Kaffi Klöru, skógrækt, listsýningu í Pálshúsi og ekki síst glæsilega tónleika í Menningarhúsinu Tjarnarborg og í Ólafsfjarðarkirkju. Á hátíðinni hljómar klassísk tónlist, djass, brasilísk tónlist, þjóðlög, íslensk sönglög og ópera. Berjadagar voru stofnaðir með einkunnarorðin ,,Náttúra og listsköpun” í huga af Erni Magnússyni píanóleikara. Listrænn stjórnandi frá 2013 er bróðurdóttir hans Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari.
*Ólafsfjörður liggur 60 km norður af Akureyri og þar er hinn frægi Ólafsfjarðarmúli. Keyrsla milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er ca. 20 mínútur og keyrsla milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar er ca 15 mínútur.