Tix.is

  • Frá 24. apríl
  • Til 15. maí
  • 4 dagsetningar
Miðaverð:0 - 4.500 kr.
Um viðburðinn

Út frá orði frá áhorfendum býr Improv Ísland til glænýja spunasýningu á hverju miðvikudagskvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum. Leikhópurinn samanstendur af 20 spunaleikurum sem skiptast á að sýna ólík spunaform ásamt því að fá til sín þjóðþekkta gesti. Stór hluti áhorfenda kemur aftur og aftur því alltaf fæðist eitthvað nýtt á sviðinu. Það mætti segja að allar sýningar séu frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem allt verður til á staðnum.

Í leikhópnum eru rúmlega 20 spunaleikarar sem skiptast á að sýna ólík spunaform í hverri viku ásamt því að hópurinn fær til sín þjóðþekkta gesti.
Hákon Örn Helgason er listrænn stjórnandi Improv Ísland.