© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
9. janúar
Miðaverð frá
3.900 kr.




Klassískt nýtt ár: Frá Beethoven til Gershwins
Tónleikar fyrir fiðlu og píanó með Þórdísi Emilíu og Jakobi Grybos
Þórdís Emilía á fiðlu og Jakob Grybos á píanó hafa spilað saman síðustu tvö ár og komið víða fram á höfuðborgarsvæðinu. Á þessum tónleikum flytja þau sín uppáhaldsverk, allt frá Beethoven til Gershwins.
Efnisskrá
Ludwig van Beethoven: Vorsónata nr. 5 í F-dúr, op. 24
Franz Schubert: Þrjú sönglög
Álfakóngurinn
Serenaða
Ave Maria
Sönglögin voru upprunalega samin fyrir söng og píanó en eru hér flutt í útsetningu fyrir fiðlu og píanó.
Frédéric Chopin: Etíða nr. 12 í c-moll, op. 10 (einleikur á píanó, Jakob)
Franz Liszt: Ungversk rapsódía nr. 2 (einleikur á píanó, Jakob)
Frédéric Chopin: Noktúrna nr. 20 í cís-moll
Upprunalega samin fyrir einleikspíanó en hér flutt á fiðlu og píanó.
George Gershwin / I. Frolov: Konsertfantasía á stefjum úr óperunni Porgy og Bess
Flytjendur
Þórdís Emilía hóf fiðlunám fimm ára gömul við Suzuki tónlistarskólann í Reykjavík. Hún hóf nám við Menntaskóla í tónlist árið 2021 og hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna á vegum Nótunnar og með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins í nóvember síðastliðnum.
Jakob Grybos hóf tónlistarnám níu ára gamall við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hann hóf nám við Menntaskóla í tónlist tólf ára og útskrifaðist þaðan síðasta vor. Hann stundar nú nám við Norsku tónlistarakademíuna. Hann hefur komið fram sem einleikari með Lúðrasveit verkalýðsins og Sinfóníuhljómsveit Menntaskóla í tónlist, auk þess að leika á jólatónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Fjölbreytt og lifandi dagskrá fyrir alla sem hafa gaman af fallegri tónlist. Verið velkomin!

