© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
27. nóvember
Sala hefst
20. nóvember 2026, 17:00
(eftir 8 mínútur)




Indíana Rós kynfræðingur mun sjá til þess að halda uppi stuðinu með fræðandi, hispurslausu og fyndnu uppistandi um kynlíf, deit lífið og sambönd ásamt því að stýra svo partýbingó með fullt af vinningum frá Kynlífstækjaversluninn Losta.
Indíana mun gera sitt allra besta til að vekja upp ykkar innri perra en vakin er athygli á því að hún ætti eflaust að læra að það þarf ekki alltaf að þora meðan aðrir þegja og að sumt ætti ekkert endilega að segja upphátt. En hún verður ekki búin að því áður en hún stígur á Sviðið og því geta einhverjir brandarar sært blygðunarkennd saklausra kvenna sem hafa ekki vott af perraskap í sér.
Kynlífstækjaversluninn Losti verður með vörurkynningu og gestir geta nýtt sér frábæra afslætti. Miðinn kostar aðeins 1500 kr og fylgir Breezer eða óáfengur drykkur með. Hlökkum til að sjá ykkur! Losti og Indíana Rós

