Credence Clearwater Revival Heiðurstónleikar

Dægurflugan

•

6. mars

Sala hefst

2. desember 2026, 10:00

(eftir 2 vikur)

CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL

Heiðurstónleikar

Fáar hljómsveitir hafa skilið eftir sig jafn djúp spor í tónlistarsögunni á jafn skömmum tíma og Creedence Clearwater Revival (CCR). Sveitin – sem skipuð var þeim John Fogerty, Tom Fogerty, Stu Cook og Doug Clifford – starfaði aðeins í rúm fjögur ár, frá 1968 til 1972. Á þeim stutta tíma gáfu þeir út sjö hljóðversplötur, þar af þrjár á árinu 1969 einu saman, og hafa samtals selt yfir 100 milljónir platna á heimsvísu.

Þrátt fyrir að langt sé síðan sveitin lagði upp laupana er tónlistin þeirra vinsælli en nokkru sinni fyrr. Á streymisveitunni Spotify telja mánaðarlegir hlustendur um 33 milljónir og heildarspilun laga þeirra nálgast 12 milljarða. Til að átta sig á hversu einstök hljómsveitin og lagasmíðar hennar voru er fróðlegt að bera sama hlustun á Spotify við hljómsveitir eins og  Red Hot Chili Peppers, Foo Fighters, AC/DC, U2, The Rolling Stones, Pink Floyd og Led Zeppelin – CCR er með meiri hlustun en allar þessar hljómsveitir, þrátt fyrir að hafa ekki gefið út nýtt lag síðan árið 1972!

Á þessum heiðurstónleikum verður þessari einstöku tónlistararfleifð fagnað og helstu perlur þeirra fluttar eins og t.d.

Proud Mary – Bad Moon Rising – Have You Ever Seen the Rain – Fortunate Son – Down on the Corner – Green River – Who'll Stop the Rain – Up Around the Bend – Born on the Bayou - Rocking all over the world og fjölmargir fleiri ódauðlegir slagarar.

Söngvarar

Birgir Haraldsson

Stefán Jakobsson (Sérstakur gestur)

Hljómsveitin CCReykjavík

Birgir Haraldsson – söngur og kassagítar

Ingólfur Sigurðsson – trommur og raddir

Friðrik Sturluson - bassi

Sigurgeir Sigmundsson – gítar

Þórir Úlfarsson – hljómborð og raddir

Í tilefni tónleikanna og afmælisársins mun CCReykjavík setja 2 plötur með lögum CCR inn á Spotify og er ennfremur  gefa út afmælisútgáfu á vínil af lögum CCR í byrjun 2027 sem verður til sölu á tónleikunum.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger