© 2026 Tix Miðasala
Grafarvogskirkja
•
26. nóvember
Miðaverð frá
5.000 kr.




Ég lifi í draumi
Söngspírurnar & Karlakór Grafarvogs
Söngspírurnar og Karlakór Grafarvogs leiða saman raddir sínar á stórglæsilegum tónleikum í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 20:00
Kórarnir eru svo sannarlega ekki ókunnugir hvor öðrum, enda er þetta í sjötta sinn sem þeir sameina krafta sína á tónleikum. Samstarfið hefur ávallt verið einstaklega ánægjulegt og nú er komið að enn einni tónlistarveislunni!
Stjórnandi beggja kóranna er Íris Erlingsdóttir.
Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Sérstaka athygli vekur þó stórbrotið lokalag tónleikanna, Circle of Life, úr Disney-kvikmyndinni The Lion King. Lagið er eftir Elton John við texta Tim Rice og er sannkölluð perla sem fær að njóta sín í flutningi kóranna tveggja.
Úrval tónlistarfólks skipar hljómsveitina:
Kjartan Valdimarsson – píanó
Vignir Þór Stefánsson – píanó
Haukur Gröndal – saxófónn og klarínett
Jóhann Hjörleifsson – trommur
Matthías Stefánsson – fiðla
Þorgrímur Jónsson – bassi
Þórður Árnason – gítar
Það er því óhætt að lofa glæsilegri tónlistarupplifun þar sem kraftmikill kórsöngur, fallegar raddir og frábær hljóðfæraleikur mætast.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á tónleika sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara!

