© 2026 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
17. - 22. desember
Miðaverð frá
3.500 kr.




Mozart við kertaljós í fimm kirkjum
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Haldórsson sellóleikari og gestir eru Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og Einar Jóhannesson sem leikur á bassethorn. Á dagskránni eru þrjú glæsileg kammerverk eftir W.A. Mozart en það eru Kvartett fyrir klarinettu og strengi í F Dúr kv. 496, Kvartett fyrir flautu og strengi í C Dúr kv 285 og Kvintett í F Dúr fyrir klarinettu, bassethorn og strengi kv.580.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.
Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju flaugardagskvöldið 19. des, í Kópavogskirkju sunnudagskvöldið 20. des, í Garðakirkju mánudagskvöldið 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudagskvöldið 22. des. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00 og er einungis lýst með kertaljósum.
Einnig verða tónleikar í Hvalsneskirkju fimmtudagskvöldið 17.des og hefjast þeir fyrr eða kl.20.00
Aðgangseyrir er kr. 3500 og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn og á tix.is.

