© 2026 Tix Miðasala
Parliament Hotel
•
19. nóvember
Miðaverð frá
5.900 kr.




Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram á Parliament Hotel fimmtudaginn 19. nóvember. Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár.
Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flytur opnunarávarp og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur meginerindi fundarins. Að loknum erindum fara fram tvennar pallborðsumræður.
Hagstjórn og stjórnvöld
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka
Atvinnulíf og viðskipti
Finnur Oddsson, forstjóri Haga
Álfheiður Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Travel Connect
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans
Húsið opnar kl. 8:00 og fundurinn hefst kl. 8:30. Miðaverð er 5.900 kr. Uppselt hefur verið á fundinn undanfarin ár og því er gott að tryggja sér miða tímanlega.

