Lappalúði í Hvalsneskirkju

Hvalsneskirkja

•

15. nóvember

Miðaverð frá

1.000 kr.

  Lappalúði í Hvalsneskirkju  

  

  Við þekkjum Hallgrím Pétursson fyrst og fremst sem sálmaskáld en hann orti einnig fjölmörg veraldleg kvæði sem eru minna þekkt. Þeirra á meðal er Lappalúðakvæði sem hann orti meðan hann var prestur á Hvalsnesi.
Í Lappalúðakvæði á Hallgrímur samtal við Lappalúða sem falast eftir börnunum hans fyrir Grýlu sem liggur farlama uppi í helli.

Auk Lappalúðakvæðisins verða einnig flutt lög við nokkuð af öðrum veraldlegum kveðskap Hallgríms.

Hörður Bragason hefur samið tónlist við Lappalúðakvæðið sem er 53 vers.

Flytjendur auk Harðar í hlutverki Hallgríms eru Pétur Eggerz sem túlkar Lappalúða og Magnea Tómasdóttir sem syngur hlutverk Guðríðar Símonardóttur, eiginkonu Hallgríms.

Börn úr grunn og tónlistarskóla Sandgerðis koma fram sem sautjándu aldar börn á Suðurnesjum.

Steinunn Eldflaug, Katrín Oktavía, Steingrímur Starri og Bragi Zar eru börn Hallgríms og Guðríðar.

Pétur Eggerz Pétursson er Skröggur, sem Lappalúði eignaðist áður en hann kynntist eiginkonu sinni og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir er Jólakötturinn.

Guðmundur Sigurðsson leikur á orgel kirkjunnar, Sighvatur Ómar Kristinsson (Músíkvatur) leikur á bassa og Eiríkur Stephensen spilar á slagverk og klarinet. Á básúnu og Theremín leikur Ingibjörg Azíma.


Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger